20.12.1983
Sameinað þing: 35. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2256 í B-deild Alþingistíðinda. (1985)

Þingfrestun

Ragnar Arnalds:

Ég vil fyrir hönd alþm. þakka hæstv. forseta fyrir hlý orð og góðar óskir okkur til handa. Ég vil einnig þakka honum góða forustu í þingstörfum og rétttála fundarstjórn. Ég óska honum, fjölskyldu hans og öllu starfsliði Alþingis gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.

Ég vil leyfa mér að vona að við megum öll hittast heil til starfa að loknu jólaleyfi. Má ég biðja þm. að taka undir óskir mínar með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]