20.12.1983
Sameinað þing: 35. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2256 í B-deild Alþingistíðinda. (1987)
Þingfrestun
Forsrh. (Steingrímur Hermannsson):
Herra forseti. Forseti Íslands hefur gefið út svohljóðandi bréf: „Forseti Íslands gjörir kunnugt: Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsrh. umboð til þess að fresta um sinn fundum Alþingis, 106. löggjafarþings, frá 20. des. 1983 eða síðar, ef henta þykir, enda verði þingið kvatt til fundar á ný eigi síðar en 23. jan. 1984.
Gjört í Reykjavík, 16. desember 1983.
Vigdís Finnbogadóttir.
Steingrímur Hermannsson.
Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.“
Samkvæmt þessu umboði og með tilvísun til samþykkis Alþingis lýsi ég því hér með yfir að þessu þingi sem nú situr er frestað. Þingið mun verða kvatt saman eigi síðar en 23. jan. n.k.
Ég leyfi mér að óska hv. alþm., starfsliði Alþingis og Íslendingum öllum gleðilegra jóla og farsæls nýárs.