24.01.1984
Sameinað þing: 37. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2276 í B-deild Alþingistíðinda. (2009)
409. mál, kvartanir vegna lögreglu
Fyrirspyrjandi (Stefán Benediktsson):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. dómsmrh. fyrir mjög ítarlegt svar. Það kom svo mikið fram af upplýsingum og skoðunum í þessu svari að ekki vinnst nægur tími til þess að fjalla um það nú á þessum vettvangi.
Það er líka gleðilegt að heyra að þegar hafa átt sér stað nokkur viðbrögð vegna þeirra mála sem til umr. hafa verið og að þau beinast þá einkum að því að menn geri sér betur grein fyrir þeim vanda sem hugsanlega er þarna á ferðinni. Vandamálið er, eins og ég minntist á í inngangi mínum og hæstv. dómsmrh. tók undir, að mestu máli skiptir að trúnaðartraust milli almennings og lögreglu sé fyrir hendi. Það er vissulega hlutverk lögreglunnar að halda þessu trúnaðartrausti sem bestu. En það verður náttúrlega einungis gert með því að hún skoði sitt hlutverk mjög náið og geri strax þær úrbætur sem með þarf þegar sýnt er að þeirra er nauðsyn eða þörf.
Ég vil endurtaka þakkir mínar til hæstv. dómsmrh. og minni á það, sem ég sagði áðan, að líklega er þetta ekki það síðasta sem maður heyrir af þessu máli á þingi nú. Endurgreiðsla söluskatts af snjómokstri, fsp. 130. mál (þskj. 165). — Ein umr.