24.01.1984
Sameinað þing: 37. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2277 í B-deild Alþingistíðinda. (2010)
130. mál, endurgreiðsla söluskatts af snjómokstri
Ólafur Þ. Þórðarson:
Herra forseti. Það stendur eins á um þessa fsp. og þá er ég mælti fyrir áðan í umr. að hún er komin frá Magnúsi Reyni Guðmundssyni varaþm. framsóknarmanna á Vestfjörðum og var lögð fram fyrir jól, en þar sem hann er ekki á þingi nú mæli ég fyrir fsp.
Það er kunnara en frá þurfi að segja að sveitarstjórnarmönnum þessa lands hefur löngum þótt það lítil sanngirni að ríkið hagnaðist á því ef mikið snjóaði. Af þeirri ástæðu var leitað eftir því að hér yrðu sett lög sem tækju af allan vafa um hver væri vilji Alþingis í þessum efnum, sem sagt sá, að ríkið skyldi ekki hagnast á því gagnvart sveitarfélögum þó að snjór og ófærð yrðu til þess að auka þeim kostnað.
Ég held að ekki þurfi að rökstyðja þessa fsp. frekar, en ég ætla að leyfa mér að lesa hana upp, með leyfi forseta:
„1. Er þess að vænta að heimild samkv. lögum nr. 24 16. mars 1983 til endurgreiðslu söluskatts af kostnaði sveitarfélaga við snjómokstur verði notuð á þessu ári?
2. Hvenær mun reglugerð um þessi mál verða gefin út?“
Þessari fsp. leyfi ég mér að beina til hæstv. fjmrh. og vænti þess að fá skýr svör.