24.01.1984
Sameinað þing: 37. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2277 í B-deild Alþingistíðinda. (2011)

130. mál, endurgreiðsla söluskatts af snjómokstri

Fjmrh. (Albert Guðmundsson):

Herra forseti. Fsp. er beint til mín á þskj. 165 og er hún svohljóðandi:

„Er þess að vænta að heimild samkv. lögum nr. 24 frá 16. mars 1983 til endurgreiðslu söluskatts af kostnaði sveitarfélaga við snjómokstur verði notuð á þessu ári?“

Svar mitt gæti verið stutt. Það er einfaldlega nei. Samkv. lögum nr. 24/1983 er fjmrh. heimilt að endurgreiða sveitarfélögum söluskatt af kostnaði sveitarfélaga af snjómokstri. Heimild þessi hefur enn ekki verið nýtt vegna þeirra vandkvæða sem á því eru að framkvæma endurgreiðslur af þessu tagi með sæmilegum hætti. Menn verða að átta sig á því að vinnuvélaþjónusta er söluskattsskyld hvort sem hún er unnin fyrir aðra eða í eigin þágu. Snjómokstur annast sveitarfélög bæði með sínum tækjum svo og leigutækjum. Það er ákaflega erfitt fyrir skattyfirvöld að staðreyna hvenær umrædd tæki hafa verið að moka snjó eða vinna að einhverju öðru.

Í raun er hér um að ræða óframkvæmanlegt verk miðað við þann mannafla sem skattakerfið ræður nú yfir. Að mínu mati eru aðeins tvær leiðir færar í þessu efni. Önnur er sú að undanþiggja vinnuvélanotkun söluskatti. Slík undanþága yrði óheyrilega dýr og því alls ekki ráðlegt að svo stöddu að leggja til að svo verði gert. Hin er sú að taka upp einhvers konar styrkjakerfi, annaðhvort í gegnum jöfnunarsjóð eða ríkissjóð, til handa þeim sveitarfélögum sem þurfa að moka miklum snjó.

Ég tel að gæta verði hófs við að fela framkvæmdavaldi úrlausn óleysanlegra mála. En staðreyndin er sú, að við höfum lög í höndunum þar sem fram kemur afdráttartaus vilji Alþingis. Ég tel að athuga ætti hvort styrkja mætti jöfnunarsjóðinn eða samband sveitarfélaga til að ráða fram úr þeim vanda sem lög þau sem hér eru til umræðu leggja á rn. En ég vil þó undirstrika að ég er sammála hv. 5. þm. Vestf. um að ósanngjarnt er að ríkið hagnist af snjómokstri sveitarfélaga. Ég er viss um að ekkert sveitarfélag í landinu yrði fegnara en Reykjavíkurborg ef þessi lög væru framkvæmanleg.