24.01.1984
Sameinað þing: 37. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2278 í B-deild Alþingistíðinda. (2013)

130. mál, endurgreiðsla söluskatts af snjómokstri

Fjmrh. (Albert Guðmundsson):

Herra forseti. Af því að það er nú fyrrv. fjmrh., forveri minn í starfi, sem hér talar vil ég benda á að hann hafði sjálfur tíma frá 16. mars fram að 26. maí á s.l. ári til að ganga frá þessu máli og gerði það ekki.