01.02.1984
Neðri deild: 42. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2507 í B-deild Alþingistíðinda. (2189)

140. mál, lántaka vegna flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli

Fjmrh. (Albert Guðmundsson):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um lántöku og fleira vegna byggingar flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli. Þetta er Ed.-mál á þskj. 180 og hefur hlotið eðlilega meðferð í þeirri deild. Ég sé því ekki ástæðu til að halda hér sömu ræðuna í þessari hv. deild og ég hélt í þeirri fyrri, en legg til að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.