25.10.1983
Sameinað þing: 8. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 279 í B-deild Alþingistíðinda. (220)

4. mál, framkvæmd byggðastefnu

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Ég hafði látið mér til hugar koma að við gætum lokið þessari umr., þó þannig að vera ekki lengur en fram undir kl. sjö, en mér sýnist að það séu litlar líkur á að slíkt takist vegna þess að umr. tekur þann tíma sem hv. þm. þóknast. Ég hygg að það væri þess vegna rétt að gera hlé núna og fresta umr.