02.02.1984
Sameinað þing: 42. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2534 í B-deild Alþingistíðinda. (2213)

104. mál, lækkun húshitunarkostnaðar

Fjmrh. (Albert Guðmundsson):

Herra forseti. Vegna þeirra fsp. sem hv. síðasti ræðumaður beindi til mín sem fjmrh. í fjarveru iðnrh. hef ég það eitt að segja að ég veit ekki betur en frv. sé á lokastigi í undirbúningi í iðnrn. Iðnrh. hefur rætt þetta í ríkisstj., en hve langt verður þangað til hann leggur það fram, því get ég ekki svarað án þess að hafa tíma til að kynna mér málið betur á þessu stigi. Vona ég að þetta svar mitt dugi að sinni.