06.02.1984
Sameinað þing: 43. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2569 í B-deild Alþingistíðinda. (2238)

Varamaður tekur þingsæti - rannsókn kjörbréfs

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Mér hefur borist svohljóðandi bréf:

„Alþingi, 6. febr. 1984.

Karvel Pálmason, 5. þm. Vestf., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég mun ekki sakir veikinda geta sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Alþfl. í Vestfjarðakjördæmi, Sighvatur Björgvinsson fyrrv. alþm., taki sæti á Alþingi í forföllum mínum.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um að fram fari í Sþ. rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Jóhanna Sigurðardóttir

forseti Nd.

Með því að Sighvatur Björgvinsson hefur ekki setið áður á þingi á þessu kjörtímabili þarf að rannsaka kjörbréf hans. Vil ég biðja hv. kjörbréfanefnd að annast það verk. Á meðan er fundi frestað í fimm mínútur. — [Fundarhlé.]