07.02.1984
Sameinað þing: 44. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2611 í B-deild Alþingistíðinda. (2277)
Rannsókn kjörbréfs
Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):
Mér hefur borist svohljóðandi bréf:
„Reykjavík, 6. febr. 1984.
Birgir Ísleifur Gunnarsson, 4. þm. Reykv., hefur í dag ritað mér á þessa leið:
„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun ekki geta sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Sjálfstfl. í Reykjavík, Guðmundur H. Garðarsson viðskiptafræðingur, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.
Ingvar Gíslason,
forseti Nd.
Til forseta sameinaðs þings.“
Guðmundur H. Garðarsson viðskiptafræðingur hefur tekið áður sæti á þessu þingi og býð ég hann velkominn til starfa.
Þá hefur borist svohljóðandi bréf:
„Reykjavík, 2. febr. 1984.
Eggert Haukdal, 6. þm. Suðurl., hefur í dag ritað mér á þessa leið:
„Þar sem ég sakir sérstakra anna mun ekki geta sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Sjálfstfl. í Suðurlandskjördæmi, Siggeir Björnsson bóndi í Holti í Kirkjubæjarhreppi, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um að fram fari í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.
Jóhanna Sigurðardóttir,
forseti Nd.
Til forseta sameinaðs þings.“
Hér fylgir kjörbréf Siggeirs Björnssonar og vil ég leyfa mér að biðja kjörbréfanefnd að taka kjörbréfið til rannsóknar. — [Fundarhlé.]