07.02.1984
Sameinað þing: 44. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2616 í B-deild Alþingistíðinda. (2290)
146. mál, umhverfismál
Ólafur Þ. Þórðarson:
Herra forseti. sé það rétt hjá hæstv. sjútvrh. að ég sé honum fróðari um hringorma verður að játast hér og nú að ekki getur verið þar um mikla þekkingu að ræða. En ég vil eindregið koma því á framfæri að hann láti athuga hvort ekki séu fleiri dýr hugsanlegir sökudólgar varðandi hringorminn en snúi sér ekki einhliða að hernaði gegn selnum þar sem mjög margt bendir til þess að sjávarfuglar, mávarnir, eigi þar stærri hlutdeild en selurinn.