13.02.1984
Efri deild: 50. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2784 í B-deild Alþingistíðinda. (2397)

144. mál, lánsfjárlög 1984

Frsm. meiri hl. (Eyjólfur Konráð Jónsson):

Virðulegi forseti. Hv. fjh.- og viðskn. hefur orðið sammála um að flytja hér eina brtt., þ.e. að hækka töluna þar sem fjallað er um Kristnisjóð, sem kom hér til umr. áðan, úr 1 600 000 í 2 500 000. Leggjum við þessa brtt. fram skriflega.