14.02.1984
Sameinað þing: 48. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2807 í B-deild Alþingistíðinda. (2427)

417. mál, skýrsla Stefáns Jónssonar til utanrríkisráðherra

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Það sem mér kom einna mest á óvart í þessari skýrslu voru þau orð sem skýrsluhöfundar höfðu um starfsmenn utanrrn. Ég vildi af því tilefni spyrja hæstv. utanrrh. hvort til séu í utanrrn. fleiri skýrslur eftir sömu skýrsluhöfunda. Ég óska eftir því við hæstv. ráðh. að hann láti gá að því, því að mig grunar að svo sé.