14.02.1984
Sameinað þing: 48. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2809 í B-deild Alþingistíðinda. (2433)

417. mál, skýrsla Stefáns Jónssonar til utanrríkisráðherra

Guðrún Agnarsdóttir:

Herra forseti. Aðeins örfá orð. Ég get ekki stillt mig um að leiðrétta atriði sem kom fram í máli hv. þm. Einars Guðfinnssonar. Flaugarnar sem hann nefndi eru ekki varnarflaugar. Það er mjög hættulegt að kalla þær varnarflaugar. Þær eru í eðli sínu árásarvopn og er einungis hægt að nota þær sem árásarvopn.