15.02.1984
Efri deild: 51. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2866 í B-deild Alþingistíðinda. (2485)

160. mál, frádráttur frá skattskyldum tekjum vegna fjárfestingar í atvinnurekstri

Frsm. (Eyjólfur Konráð Jónsson):

Hæstv. forseti. Með vísan til nái. meiri hl. fjh.- og viðskn. við 159. mál, sem var hér á dagskrá áðan, og með hliðsjón af því að þetta mál hefur í rauninni verið rætt sem fylgifrv. með því máli sé ég ekki ástæðu til að fara neinum orðum um það frekar en þeim að meiri hl. leggur til að frv. verði samþykkt óbreytt.