15.02.1984
Neðri deild: 47. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2884 í B-deild Alþingistíðinda. (2514)

129. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Guðrún Helgadóttir:

Herra forseti. Ég þakka hæstv. fjmrh. fyrir að fara að óskum okkar þm. Alþb. og þm. Alþfl. og vil benda á að hann hefur lýst því yfir að hér verði gerð reglugerðarbreyting og fyrirframgreiðslur lækkaður eða niður felldar af elli- og örorkulífeyrisþegum. Það er sannarlega óvenjulegt að árangur verði slíkur sem hér hefur orðið af málflutningi okkar og fyrir það vil ég svo sannarlega þakka.