20.02.1984
Sameinað þing: 52. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2949 í B-deild Alþingistíðinda. (2552)

Varamenn taka þingsæti

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Borist hefur svohljóðandi bréf:

„Reykjavík, 20. febr. 1984.

Guðmundur Einarsson, formaður þingflokks Bandalags jafnaðarmanna, hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Skv. beiðni Kristínar S. Kvaran, 1. landsk. þm., sem vegna veikinda getur ekki sinnt þingstörfum á næstunni, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður landskjörinna þm. BJ, Kristófer Már Kristinsson, Reykholti, taki sæti á Alþingi í fjarveru hennar.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.

Ingvar Gíslason,

forseti Nd.

Kristófer Már Kristinsson hefur áður átt sæti á þessu þingi. Býð ég hann velkominn til starfa á ný.

Þá hefur borist svohljóðandi bréf:

„Reykjavík, 20. febr. 1984.

Helgi Seljan, 2. þm. Austurl., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég mun ekki sakir veikinda geta sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Alþb. í Austurlandskjördæmi, Sveinn Jónsson, Egilsstöðum, taki sæti á Alþingi í forföllum mínum.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um að fram fari í Sþ. rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Salome Þorkelsdóttir,

forseti Ed.

Bréfi þessu fylgir kjörbréf Sveins Jónssonar. Vil ég leyfa mér að biðja hv. kjörbréfanefnd að taka kjörbréfið til rannsóknar. Á meðan verður fundi frestað í 5 mínútur. — [Fundarhlé.]