27.10.1983
Sameinað þing: 9. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 376 í B-deild Alþingistíðinda. (258)

Umræður utan dagskrár

Guðmundur Einarsson:

Herra forseti. Þingflokkur BJ harmar innrás Bandaríkjahers í grannríkið Grenada og lýsir samúð sinni með því fólki sem að ósekju verður fyrir hörmungum styrjaldar. Íslendingar tengjast því manndrápi sem þarna á sér stað vegna aðildar sinnar að Atlantshafsbandataginu. BJ skorar á utanrrh. að mótmæla innrásinni í Grenada og afleiðingum hennar.