21.02.1984
Sameinað þing: 53. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2996 í B-deild Alþingistíðinda. (2583)

Varamaður tekir þingsæti - rannsókn kjörbréfs

Frsm. (Þorsteinn Pálsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur yfirfarið kjörbréf Tryggva Gunnarssonar, Vopnafirði, sem er 1. varaþm. Sjálfstfl. í Austurlandskjördæmi. Þess er óskað, að hann taki sæti hæstv. iðnrh. sem er á förum til útlanda í opinberum erindum.

Kjörbréfanefnd hefur yfirfarið kjörbréfið. Gerir hún engar athugasemdir og leggur til að kjörbréfið verði samþykkt.