06.03.1984
Sameinað þing: 61. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3378 í B-deild Alþingistíðinda. (2897)
174. mál, lífefnaiðnaður
Iðnrh. (Sverrir Hermannsson):
Herra forseti. Ég vil að skýrt komi fram að það er sannfæring mín að hér sé um mannleg mistök að tefla en ekki ásetning, því fer víðs fjarri. Þáltill. er samþykkt 4. maí 1982. Hún berst rn. 18. maí. Þá er hún lögð án frekari umsvifa í málasafn rn. Þetta þekkja menn til vegferðarinnar. Þetta eru auðvitað leið mistök, en þau eiga sér enga aðra skýringu en þá að þarna hafi orðið mistök, en málið síðan gleymst í önnunum, svo maður segi hverja sögu eins og hún gengur.
Hv. fyrirspyrjandi gat þess að hann vænti þess að reynt yrði að sjá af fjármunum til þessara mikilvægu verka og rannsókna. Ég er ekki bjartsýnn á að tök séu á því á þessu ári: Ég hef hins vegar áður lýst því yfir á öðrum opinberum vettvangi að ég mundi beita mér fyrir því og gera um það till. til næstu fjárlagagerðar að séð yrði af fjármagni til þessara þarfa. Við þá yfirlýsingu mun ég standa. Það er enginn vafi á því að hér er um stórmerk mál að ræða sem við þurfum að gefa miklu meiri gaum. Væntanlega og vonandi verður þessi leiða málsmeðferð og mistök ekki til þess að dragist úr hömlu að menn hefjist nú handa að marki.