06.03.1984
Sameinað þing: 61. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3383 í B-deild Alþingistíðinda. (2905)
179. mál, eftirlitsnefnd með framkvæmd fjárlaga
Stefán Benediktsson:
Herra forseti. Út af orðum hv. 2. þm. Norðurl. e. verð ég að skýra það út sem hann ekki skildi í mínu máli.
Ég hef út af fyrir sig ekkert við það að athuga að þing eða fjvn. skipi hann eða fleiri menn í sérstaka undir- eða eftirlitsnefnd með gerð fjárlaga. Það sem ég hef við að athuga er það, að fjmrh., sem ber ábyrgð á framkvæmd fjárlaganna, þ. e. sá aðili sem þing á að hafa raunverulegt eftirlit með skipi menn í þessa nefnd. Mér er alveg sama þó að fyrir því séu einhver fordæmi úr gömlu samtryggingarkerfi fjórflokkanna að slíkt sé gert. Það breytir engu um að þetta er óeðlilegt miðað við að stjórnarskrá okkar gengur út frá tvískiptingu valds, í löggjafarvald og framkvæmdavald.