06.03.1984
Sameinað þing: 61. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3384 í B-deild Alþingistíðinda. (2909)
179. mál, eftirlitsnefnd með framkvæmd fjárlaga
Ragnar Arnalds:
Herra forseti. Því miður missti ég af upphafi þessar umr., þar sem ég var kallaður fram þegar hún var að hefjast.
Ég vildi láta í ljós þá skoðun mína að fyrst og fremst ber að miða við að fjvn. Alþingis sé sú eftirlitsnefnd með framkvæmd fjárlaga sem hverju sinni sé höfð mest í heiðri þó að fjmrh. geti að sjálfsögðu á hverjum tíma haft sínar sérstöku eftirlitsnefndir þar fyrir utan. Ég tek því eindregið undir það sjónarmið, sem komið hefur fram í þessum umr., að við verðum að reyna að tryggja að fjvn. geti gegnt þessu hlutverki sínu. Það er mál sem ég þarf ekki að fjölyrða frekar um.
En var það rétt sem mér heyrðist, að hv. núverandi formaður fjvn. væri að reyna að útskýra og afsaka það mikla gat sem virðist blasa nú við í fjárlagadæmi gildandi árs með því að vísa til þess að mikill halli hefði orðið á síðasta ári? Það tel ég hina mestu fjarstæðu. Hallinn á s. l. ári er að miklum hluta tilkominn vegna ákvarðana sem núv. ríkisstj. tók í upphafi síns ferils, bæði vegna skattalækkana sem hún tók ákvarðanir um, vegna aukningar á niðurgreiðslum, vegna þess að ekki var farið í fjármögnun í þágu vegagerðar eins og til hafði staðið þegar vegáætlun var framkvæmd og af mörgum öðrum ástæðum. Þessar ástæður samanlagt höfðu í för með sér um 800 millj. kr. útgjaldaaukningu á s. l. ári og eru meginskýringin á því að verulegur halli varð á því ári. Þetta kom allt mjög skýrt fram í umr. um fjárlög ársins 1984 sem fram fóru í lok seinasta árs.
Ég vildi láta þetta koma hér fram vegna þess að ég tel það hina mestu fjarstæðu að ætla að fara að útskýra gatið sem blasir við í fjárlagadæmi þessa árs með tilvísun til þess sem skeði á seinasta ári. Þar var um að ræða að eftir að fjárlög höfðu verið afgreidd, þ. e. á miðju ári, tekur ríkisstj. fjöldamargar ákvarðanir í samræmi við sína stefnu um ný útgjöld og nýja meðferð ríkisfjármála. Auðvitað hlaut að koma allt annað út úr því dæmi en fjárlög ársins höfðu gert ráð fyrir