06.03.1984
Sameinað þing: 61. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3396 í B-deild Alþingistíðinda. (2920)

432. mál, tilraunastöðin á Reykhólum

Heilbr.- og trmrh. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Ég vil aðeins leiðrétta hv. 3. þm. Vestf. Það hefur ekki komið hér til umr. eða afgreiðslu á Alþingi við afgreiðslu fjárlaga niðurskurður til þessarar tilraunastöðvar. Það kom í fjárlagafrv. fram fé til þessarar tilraunastöðvar eins og allra annarra. Það hefur ekki komið til neinnar afgreiðslu hér á Alþingi niðurskurður og þar af leiðandi getur hv. þm. ekki hvatt okkur til að breyta um skoðun í þessum efnum. Við höfum ekki tekið þátt í því. Hins vegar erum við reiðubúnir að kanna öll mál og gera rekstur allra fyrirtækja og stofnana betri en verið hefur.