07.03.1984
Efri deild: 58. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3451 í B-deild Alþingistíðinda. (2979)
222. mál, Aflatryggingasjóður sjávarútvegsins
Stefán Benediktsson:
Virðulegi forseti. Hér liggur fyrir frv. eins og fyrri daginn því að til þess störfum við hér. Þetta frv. fjallar um ákveðna íhlutun stjórnvalda í málefni sem að mestu leyti tilheyra frjálsum samningsaðilum. Hér er verið að hlutast til um skiptingu ákveðinna fjármuna í sjóðakerfi sem lofað var að aflétta í áföngum fyrir allmörgum árum síðan. Hér er ákveðin stjórnsemi á ferðinni.
Ég þarf reyndar ekki að minna á till. sem fram eru komnar frá okkar hendi um tilhögun þessara mála. Við höfum lagt fram frv. um að fiskverð verði gefið frjálst, það sé það stjórntæki sem í raun og veru þjóni eðlilegast þeim markmiðum sem miðað er að. Frjálst fiskverð gerir það sjálfkrafa að verkum að það verður allra hagur, sem að fiskveiðum standa, að skila afla á land þannig að tilkostnaður sé sem minnstur og hagur manna þar með sem mestur.
Hér er aftur á móti farin sú leið að stjórna hlutunum að ofan. Það þótti reyndar ágætt hér áður fyrr á góðum búum að stjórnsemi væri fyrir hendi en þá gengu menn líka yfirleitt út frá að menn vissu nákvæmlega hvað þeir væru að gera. Fjmrh. hæstv. ríkisstj. hefur staðfest það bæði fyrir og eftir jól að þessi stjórn hafi nánast ekki haft hugmynd um hvað hún var að gera mestalla sína stjórnartíð. Hann hélt því fram fyrir jól að þær upplýsingar, sem hann og aðrir stjórnarliðar hefðu haft í höndum fyrir kosningar, hefðu verið villandi og rangar. Hann hélt því fram að þegar kosningum lauk hefðu þeir ekki haft eða getað haft nokkra yfirsýn yfir fjárreiður þessa lands og ástand efnahagsins. Núna stöndum við frammi fyrir því að á fjárlögum er risagat sem kom mönnum svo gjörsamlega á óvart að það virtist rétt eins og það hefði orðið til á einni nóttu.
Því verður mér tíðrætt um þessa hluti vegna þess að hæstv. sjútvrh. hefur haldið því fram í þessum umr. að hér sé ekki verið að skerða kjör sjómanna. Ég hef lesið frv. eins og sjálfsagt aðrir þm. og fæ ekki séð af þeim lestri að þar séu færðar neinar sönnur þess að hér sé ekki verið að skerða kjör sjómanna. Nú vildi ég eiginlega beina þeirri spurningu til hæstv. sjútvrh. hvort hann gæti sannað mér og þá þingheimi með einföldum hætti, kannske einfaldlega lýsingu á skiptingu afla einnar veiðiferðar, hvernig það skýrist að kjör sjómanna rýrna ekki eða versna ekki eftir samþykkt þessara laga. Það er mjög áríðandi að við fáum þessa sönnun eða þessar upplýsingar vegna þess að verið er að biðja okkur hér um samþykki eða synjun á þessum lögum og þar horfum við trúlega langhelst til þess hvort þeir aðilar, sem þarna eru til umræðu, hagnast eða verða fyrir áföllum af þessari lagagerð.