08.03.1984
Sameinað þing: 63. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3476 í B-deild Alþingistíðinda. (2995)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Borist hefur svohljóðandi bréf:

„Reykjavík, 7. mars 1984.

Davíð Aðalsteinsson, 5. þm. Vesturl., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

Þar sem ég dvelst erlendis í einkaerindum og get því ekki sinnt þingstörfum á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varaþm. Framsfl. í Vesturlandskjördæmi, Jón Sveinsson, Akranesi, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.

Salome Þorkelsdóttir,

forseti Ed.

Jón Sveinsson hefur að undanförnu setið á Alþingi, raunar í Nd. en flyst nú til Ed. Býð ég hann velkominn sem Ed.-þm.