08.03.1984
Sameinað þing: 63. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3522 í B-deild Alþingistíðinda. (3016)

378. mál, ríkisfjármál 1983

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Hv. 2. landsk. þm. fór fram á það við forseta að þessari umr. yrði ekki lokið fyrr en hæstv. félmrh. hefði talað. Þessari ósk er hafnað. Forseti hefur ekki í valdi sínu að fyrirskipa eða þvinga einn eða neinn, hvort sem það er ráðh. eða aðrir þm., til þess að tala. Það er í valdi hvers og eins þm. Þessari umr. verður lokið þegar ekki hafa fleiri kvatt sér hljóðs og engir eru á mælendaskrá.