12.03.1984
Efri deild: 59. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3633 í B-deild Alþingistíðinda. (3027)

240. mál, ábyrgð á láni fyrir Arnarflug

Fjmrh. (Albert Guðmundsson):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til l. um heimild fyrir fjmrh. fyrir hönd ríkissjóðs til að ábyrgjast lán fyrir Arnarflug hf. á þskj. 424.

Með því frv. sem hér hefur verið lagt fram óskar ríkisstj. heimildar Alþingis til að veita Arnarflugi hf. ríkisábyrgð vegna láns sem taka á til að bæta rekstrarfjárstöðu félagsins og getur numið allt að 1.5 millj. dollara. Áætlun Arnarflugs miðar að því að greiða lausaskuldir fyrirtækisins með hinu nýja láni, sem væntanlega verður tekið til fimm ára. Þessar lausaskuldir eru að langmestu leyti erlendar skuldir og eru vegna viðhalds- og varahlutakostnaðar og eldsneytiskaupa.

Þetta mál var fyrst borið undir stjórnvöld með bréfi Arnarflugs hf. til samgrn. og fjmrn. hinn 25. jan. s. l. Í bréfinu kemur fram að hallarekstur síðustu tveggja ára knýi félagið til að leita þessarar aðstoðar stjórnvald a til að gera því kleift að komast yfir erfiðleika.

Ástæður taprekstursins eru skýrðar í aths. með frv. og vísast þangað um þá hlið málsins.

Til frekari skýringar má geta þess að innanlandsflug fyrirtækisins hefur gengið erfiðlega. Ástæður þess eru að ýmsir þeir staðir sem flogið er til eru litlir og aðstæður erfiðar, m. a. vegna snjóþyngsla og aurbleytu á flugvöllum. Stjórn Arnarflugs hf. hefur upplýst að í athugun sé að endurnýja að hluta til flugvélakost í innanlandsfluginu og með hagkvæmari flugvélum eigi að vera unnt að breyta erfiðri afkomu í innanlandsfluginu mjög til hins betra.

Um millilandaflugið er það að segja að félagið varð fyrir því áfalli að vél félagsins af gerðinni Boeing 720–B var úrskurðuð óhæf til reksturs vegna tæringar. Þá hefur fé félagsins farið í að byggja upp nánast frá grunni allt markaðsstarf á þeim stöðum í Evrópu sem því var úthlutað flugleyfum til, þ. e. Amsterdam, Düsseldorf og Zürich. Allt þetta gerir að verkum að fyrirtækið þarf tíma til að vinna sig út úr þeim erfiðleikum.

Ég vil geta þess að lokum að forráðamenn Arnarflugs hf. telja að rekstraráætlunin sýni að taprekstri verði snúið við á næstu árum. Þessar áætlanir hafa þeir sent samgrn. Forráðamenn Arnarflugs hf. telja að á næstu vikum og mánuðum geti fyrirtækið sett þær tryggingar sem setja þarf ríkisábyrgðasjóði til þess að ríkisábyrgð komi til greina skv. almennum reglum. Fallist hv. Alþingi á frv. þetta mun venjuleg athugun fara fram á eignum félagsins og þeirri athugun verða hraðað sem föng eru á.

Ég legg til, hæstv. forseti, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til hv. fjh.- og viðskn.