13.03.1984
Sameinað þing: 64. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3664 í B-deild Alþingistíðinda. (3071)
423. mál, íslenskt efni á myndsnældum
Fyrirspyrjandi (Eiður Guðnason):
Herra forseti. Ég hef á þskj. 356 leyft mér að bera fram fsp. til hæstv. menntmrh. um það hvað liði framkvæmd þáltill. sem samþykkt var hér á hinu háa Alþingi í maíbyrjun 1982. Tillgr. var þess efnis að Alþingi ályktaði að fela menntmrh. að beita sér fyrir viðræðum við eigendur höfundarréttar íslensks efnis sem flutt hefur verið í Ríkisútvarpinu — sjónvarpi. Þessum viðræðum var ætlað að hafa það markmið að setja reglur er gætu gert það að verkum að almenningur ætti þess kost að fá íslenskt sjónvarpsefni til láns eða kaupa á myndsnældum sem nú gerast æ algengari og almennari. Fsp. mín er sem sagt þessi: Hvað líður framkvæmd þessarar till.?