14.03.1984
Neðri deild: 57. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3767 í B-deild Alþingistíðinda. (3180)

144. mál, lánsfjárlög 1984

Páll Pétursson:

Herra forseti. Ég vil kanna það hjá ráðh. hvort svör þeirra þurfi að taka mjög langan tíma. Það væri mönnum miklu þægara að þurfa ekki að sitja hér yfir umr. í kvöld og hvort þeir treystu sér til þess að svara hér í stuttu máli og með þeim hætti að fullnægjandi væri og ekki þyrfti að vekja upp auknar umr.