14.03.1984
Neðri deild: 57. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3774 í B-deild Alþingistíðinda. (3186)
144. mál, lánsfjárlög 1984
Frsm. minni hl. (Kjartan Jóhannsson):
Herra forseti. Út af þessu samningatali verð ég að segja að það er svolítið erfitt að halda einhverja samninga sem menn hafa aldrei heyrt um. Ég hef ekkert heyrt um það að hér ætti að ljúka umr. fyrir kl.. 7 í kvöld, eins og mér skilst að liggi í orðum ráðh. En hvað um það, ég skal leggja mig fram um það — og þykist ekki hafa tafið umr. mjög — að þessari umr. megi ljúka sem fyrst ef það er áhugi manna.
Á hinu kemst ég ekki hjá að vekja athygli, að í þeim orðum sem hér hafa fram gengið af vörum ráðh. hafa þeir ekki farið einu einasta orði um það grundvallaratriði að hugmyndin sé að afgreiða fjárlög út frá forsendum sem frsm., höfundurinn sjálfur, telur að séu brostnar á plaggi sem hann hefur þegar birt. Þetta tel ég að sé langstærsta málið. Með þessu móti eru menn í rauninni að stinga höfðinu í sandinn. Kannske birtist það líka og ekki síður í máti hæstv. félmrh. hér áðan, þegar hann virtist vera búinn að finna upp einhverja nýja margföldunartöflu, sem gerði það að verkum að jafnvel þótt fjármagn væri dregið saman, þá mundu engu að síður verða jafnmargar lánveitingar eftir sem áður. Þetta er einhver ný margföldunartafla, sem ég held að þurfi þá einhverja nýja tilsögn í. Þetta kalla ég líka að stinga höfðinu í sandinn. Og að horfa algerlega fram hjá þeim vanda sem við er að glíma í því gati sem þegar hefur komið fram í tölum frá fjmrh. og yfirlitum um það að ekki verði unnt að afla þess innlenda lánsfjár sem gert er ráð fyrir. Sérstaklega er bent á að þar á meðal séu lánveitingar til húsnæðislánakerfisins. Það finnst mér ekki góð latína að horfa fram hjá því með þessum hætti.
Að síðustu þótti mér mjög athyglisvert að hæstv. félmrh. skyldi segja deildinni frá því að hann væri með einhverjar nýjar tölur en ekki gera neina grein fyrir hverjar þær voru. Ég vænti þess að hann sjái til þess að þdm. fái þessar tölur ef í þeim er einhvern nýjan sannleik að finna.
Ég skal svo ekki tefja þessa umr. frekar. Ég vænti þess að tækifæri verði til þess að fjalla frekar um þetta við 3. umr.