19.03.1984
Neðri deild: 59. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3808 í B-deild Alþingistíðinda. (3241)
180. mál, framboð og kjör forseta Íslands
Forsrh. (Steingrímur Hermannsson):
Herra forseti. Í frv. þessu felast þær breyt. á lögum um framboð og kjör forseta Íslands að segja má að hvort tveggja séu leiðréttingar.
Í 1. gr. er gert ráð fyrir að í staðinn fyrir að kjör fari fram á sunnudegi verði það á laugardegi og er það í samræmi við þá breytingu sem gerð hefur verið á almennum kosningalögum.
Það er svo með lög um framboð og kjör forseta Íslands að þau vísa í ýmsum tilfellum til hinna almennu kosningalaga, m. a. um hvernig greiða skuli atkvæði. Eftir að kosningalögum var breytt 1959 og horfið frá einmenningskjöri yfir í listakjör mun hafa láðst að breyta lögum um kjör forseta Íslands. Nú er það loksins gert með 2. gr., þar sem fram er tekið að krossa skuli við einn frambjóðanda við forsetakjör. Er þannig um leiðréttingu að ræða sem að sjálfsögðu hefði átt að framkvæma þegar 1959, en hefur láðst að gera.
Ég sé ekki ástæðu til að hafa fleiri orð um þetta frv. — Ég vil geta þess að nauðsynlegt verður að auglýsa framboðsfrest fyrir mánaðamótin. Vil ég því leyfa mér að mælast til þess að frv., sem hefur þegar farið í gegnum Ed., fái skjóta afgreiðslu í þessari hv. deild. Að svo búnu legg ég til að málinu verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. allshn.