19.03.1984
Neðri deild: 59. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3825 í B-deild Alþingistíðinda. (3251)

144. mál, lánsfjárlög 1984

Forseti (Ingvar Gíslason):

Ég vil áður en hv. þm. tekur til máls geta þess að þessum fundi verður að ljúka kl. 4. Áður hafði verið umtal um að fundurinn gæti haldið áfram eitthvað lengur en nú hefur það ráðist að svo getur ekki orðið. Er þá gert ráð fyrir fundarhléi á tímabilinu fjögur til fimm, en þá hefst fundur að nýju.