19.03.1984
Neðri deild: 59. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3856 í B-deild Alþingistíðinda. (3265)
144. mál, lánsfjárlög 1984
Fjmrh. (Albert Guðmundsson):
Herra forseti. Það er kannske vegna þess að allt var í lagi hjá síðustu ríkisstj. sem neyðaráætlunin til fimm ára var búin til af Alþb. á sínum tíma og þjóðstjórn skyldi falið að till. þess að framkvæma hana. Ekkert dugði annað en samstarf allra stjórnmálaflokka í fimm ár og neyðaráætlun til að ráða fram úr þeim mikla vanda sem ríkisstj. var komin í.
Ég ætla að taka undir það með hæstv. forsrh. að það er ekki oft sem hv. 3. þm. Reykv. getur farið rétt með. Ég sagði frá því, svaraði spurningu hans númer tvö, hvar ætti að spara 5% og 21/2% og hvernig ætti að standa að því og hverjir stæðu að því. Ég sagði líka að ég mundi gera tillögur um niðurskurð á framkvæmdum, en ekki að ég ætlaði að koma slíku í gegn með einhverju offorsi. Til þess þarf samþykki meðráðh. — Ég vil bara að það sé rétt með farið.
Annars sé ég ekki ástæðu til þess að elta ólar við nokkurn skapaðan hlut af því sem kom fram í ræðu þm. umfram það að svara þeim spurningum sem hann lagði fyrir mig og ég tel mig hafa gert. En eitt ætla ég að gera að umræðuefni því það er táknrænt og það er lærdómsríkt um leið. Það er táknrænt fyrir Alþýðubandalagsmenn og það er lærdómsríkt fyrir þá sem vilja á annað borð læra þingmennsku.
Fram kom áðan hjá hv. 4. landsk. þm. að hann væri ekki þingreyndur. Það er ekki nema eðlilegt. Ég er búinn að vera hérna í áratug og tel mig alls ekki þekkja það völundarhús sem þingið er, en ég veit þó pínulítið meira en hann. Og nú ætla ég að gefa honum eina smákennslustund í því sem menn eiga að vara sig á, og ég vona að hann taki við án þess að þakka mér sérstaklega fyrir það, þó menn eigi alltaf að vera þakklátir fyrir það sem þeir fá umfram það sem þeir geta útvegað sér sjálfir.
Hér kom hv. 7. þm. Reykv. og vitnaði í hvorki meira né minna en nál. minni hl. Þetta nál. er undirritað af Guðmundi Einarssyni, fundaskrifara minni hl. n. Á bls. 18 er tafla sem virðulegur 7. þm. Reykv. vitnaði í og taldi þar upp hvernig staðan hefði verið seinni partinn á s. l. ári, en hann gat eins ekki — og nú kemur sá lærdómur sem ég ætla að biðja unga stjórnmálamenn, nýja stjórnmálamenn, að átta sig á. Hér er taflan með svohljóðandi yfirskrift: „A=kröfur Seðlabankans á ríkissjóð, nettó (A-hluti). Staða í mánaðarlok í milljónum króna.“ Síðan les hv. 7. þm. Reykv. stöðuna í mánaðarlok frá miðju ári 1983 fram til janúar 1984, en þegar hann kemur svo að því sem þurfti að vera bareflið á fjmrh. vitnar hann í uppgefnar tölur af Seðlabankanum, eins og hann sagði, frá 15. þessa mánaðar, 15. mars — ekki mánaðarlokum, eins og hinar tölumar, heldur 15. mars. En fyrir 15. mars eru greidd laun til ríkisstarfsmanna og það eru greiddar lífeyrisbætur og fyrir mánaðamótin koma inn tekjur af söluskatti og ýmislegt annað. Svona verða menn blekktir ef þeir ekki átta sig á hver talar og við hvern er að eiga.
Ég vil leiðrétta þetta og að það kom fram að svona er málflutningur hv. 7. þm. Reykv., ekki bara núna heldur yfirleitt. Og því segi ég: Enn þá sakna ég Guðmundar J., vinar míns.