20.03.1984
Sameinað þing: 67. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3910 í B-deild Alþingistíðinda. (3340)

433. mál, breytingar á byggingarreglugerð

Friðjón Þórðarson:

Herra forseti. Á þskj. 399 er greint frá fsp. sem Sturla Böðvarsson sveitarstjóri bar fram er hann sat á þingi nú fyrir skömmu og beindi til hæstv. félmrh. Fsp. er svohljóðandi:

„Er þess að vænta að núgildandi byggingarreglugerð verði breytt á þann veg að auknar verði kröfur um einangrun húsa?“

Þar sem hér er um mikilvægt mál að ræða, sem mjög hefur verið fjallað um að undanförnu og margir leitt hugann að. þykir mér rétt að beina þessari fsp. til hæstv. félmrh.