01.11.1983
Sameinað þing: 11. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 473 í B-deild Alþingistíðinda. (335)

20. mál, hjartaskurðlækningar á Landspítalanum

Viðskrh. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Eins og hv. þm. gat um hefur verið flutt á Alþingi till. um frestun þessarar byggingar og því eðlilegt að umr. um það eigi sér stað þegar sú till. verður tekin til umr.

En ég gat þess áðan í þessu stutta en greinargóða svari, eins og þm. orðaði það, að næsti verkþáttur nemur 19.8 millj. kr. á verðlagi 1. okt. og um aðra verkþætti hefur ekki verið samið.