21.03.1984
Efri deild: 67. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3964 í B-deild Alþingistíðinda. (3379)

42. mál, orkulög

Tómas Árnason:

Virðulegi forseti. Ég skal ekki blanda mér í þessa umr. hvað efni hennar snertir, en aðeins láta þess getið, að ég sat í þeirri ríkisstj. sem setti þessi brbl. og mun að sjálfsögðu standa að því að þau verði staðfest. Það hefur ekkert verið um það samið milli núv. stjórnarflokka að breyta til í þessu efni og lít ég því á það sem sjálfsagt mál að ég standi að staðfestingu laganna hér á Alþingi.