21.03.1984
Efri deild: 67. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3965 í B-deild Alþingistíðinda. (3384)

251. mál, eiturefni og hættuleg efni

Heilbr.- og trmrh. (Matthías Bjarnason):

Virðulegi forseti. Um frv. það sem hér liggur frammi get ég verið stuttorður. Þær breytingar sem hér eru lagðar til á löggjöf um eiturefni og hættuleg efni eru þær að svokallaðar eiturbeiðnir gildi lengst í eitt ár frá útgáfu í stað þess að þær gildi í eitt ár án þess að hægt sé að stytta þann tíma. Enn fremur er lagt til að aðeins megi láta úti einu sinni gegn sömu eiturbeiðni í stað þrisvar sinnum ef um er að ræða efni sem talin eru upp á lista 2, en sá listi fjallar um eitur.

Í ljós hefur komið að nauðsyn ber til að takmarka sem allra mest útgáfu eiturbeiðna og fækka afgreiðslum skv. þeim, ekki síst þar sem um er að ræða sterk eiturefni og önnur eiturefni. Engin ástæða er til þess að nota slík efni nema þar sem brýna nauðsyn ber til og ástæðulaust að safna þeim saman og geyma. Nái þessi breyting fram að ganga yrði eingöngu hægt að láta úti einu sinni gegn sömu eiturbeiðni og hægt yrði að takmarka gildistíma, þó þannig að hann færi aldrei yfir eitt ár. Þessi skipan er hin sama og gildir í dag varðandi lyf, sbr. lyfjalög frá 1978, þ. e. að láta lyfseðla einungis gilda á eina afgreiðslu.

Þá er lögð til önnur breyting sem felur í sér að auðvelda þeim sem leyfi hafa til að kaupa og til þess að nota eiturefni að afla sér slíkra efna. Þannig kann fyrirtæki að eiga í fórum sínum eiturefni á lista 2 sem það hefur flutt inn til eigin þarfa og nýst gæti öðrum sem lögmæta þörf hefur fyrir eiturefni og leyfi hefur til kaupa. Í slíkum tilvikum er ástæðulaust að lög standi beinlínis gegn sölu milli aðila er rétt hafa til kaupa og nota á þessum efnum, en lögin eru þannig úr garði gerð í dag. Þetta leiðir einnig til óþarfa birgðasöfnunar eiturefna þegar innflutningur og notkun fer saman.

Þetta frv. er flutt skv. till. eiturefnanefndar, sem starfar skv. lögum um eiturefni og hættuleg efni, og að höfðu samráði við landlækni.

Virðulegi forseti. Ég sé ekki ástæðu til þess að fara fleiri orðum um þetta frv. en legg til að því verði að lokinni þessari umr. vísað til hv. heilbr.- og trn.