27.03.1984
Sameinað þing: 70. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4175 í B-deild Alþingistíðinda. (3555)

214. mál, starfs- og endurmenntun vegna tækniþróunar

Menntmrh. (Ragnhildur Helgadóttir):

Herra forseti. Ég vil einungis svara fsp. hv. 2. landsk. þm. um það hvort ekki sé fyrirhugað að undirbúa samvinnu milli atvinnulífs og skólakerfis að slíkri starfs- og endurmenntun. Það er einmitt eitt af þeim verkefnum sem umrædd nefnd menntmrn. hefur. Satt að segja er eitt af því langmikilvægasta sem hún hefur með höndum einmitt að koma slíku samstarfi á.