27.03.1984
Sameinað þing: 70. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4177 í B-deild Alþingistíðinda. (3559)
428. mál, fullorðinsfræðsla
Hjörleifur Guttormsson:
Herra forseti. Ég tel þá fsp. sem hæstv. menntmrh. var að svara hér mjög tímabæra. Mér þótti miður að heyra það í máli hæstv. ráðh. að ekki væri von á því að hér yrði lagt fram frv. varðandi fullorðinsfræðslu á þessu þingi. Það kom einnig fram í máli hæstv. ráðh. að hann teldi raunar enga þörf á slíkri lagasetningu. Ég skil því svar hæstv. ráðh. svo að ekki sé von á neinni löggjöf undir heitinu Lög um fullorðinsfræðslu, heldur boðaði ráðh. að tekið yrði á einstökum þáttum, aðallega til þess að staðfesta með lögum starfsemi sem þegar færi fram.
Ég verð að segja að mér kemur nokkuð á óvart að heyra þetta viðhorf eftir að þó hefur verið viðleitni til þess hjá stjórnvöldum á fyrri árum, eins og hér hefur komið fram, að móta stefnumarkandi löggjöf um þessi efni. Og ég tek undir það með hv. fyrirspyrjanda að á því er mikil nauðsyn. Ég hygg hins vegar að það hafi orðið til trafala í þessu máli að fyrsta frv. sem hér var sýnt á hv. Alþingi fyrir tíu árum síðan um fullorðinsfræðslu var ekki sniðið við íslenskar aðstæður með þeim hætti, að líklegt væri að það fengi brautargengi, og það hafi orðið til þess að tafir urðu á því máli. En ég kann út af fyrir sig ekki skýringar á því hvers vegna dregist hefur svo úr hömlu að undirbúa tillögur um þetta efni á þeim árum sem síðan eru liðin.
Ég vil aðeins hvetja til þess að.undinn verði að því bráður bugur að móta rammalöggjöf eða heildarlöggjöf, hvað sem menn vilja kalla það, um þennan nauðsynlega fræðsluþátt. Ég vil benda á það að þó að starfsemi öldungadeilda við framhaldsskóla og menntaskóla sé allra góðra gjalda verð, þá eru slíkir skólar ekki í öllum byggðarlögum eða fræðsluumdæmum og nauðsynlegt að marka skýrar reglur uni hlutdeild ríkisins og skyldur gagnvart fullorðinsfræðslu, hvort sem um er að ræða stuðning sem tengist hinu lögbundna skólakerfi eða við námsflokka eða önnur form slíkrar starfsemi.