27.03.1984
Sameinað þing: 70. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4185 í B-deild Alþingistíðinda. (3568)
429. mál, samanburðarkannanir á launakjörum kvenna og karla
Forsrh. (Steingrímur Hermannsson):
Herra forseti. Eins og ég sagði áðan er ég tilbúinn að beita mér fyrir könnun og ég hélt að svar mitt að því leyti væri nægilega skýrt. Ég er jafnframt tilbúinn og hef reyndar gert ráðstafanir til þess að þegar verði hafin athugun á því að skilgreina þessi markmið, hvað menn vilji nákvæmlega fá fram og það verði að sjálfsögðu gert í samráði við fulltrúa þeirra samtaka sem nefnd hafa verið til slíkrar athugunar. Ég mun einnig leita eftir að fá þann kostnað áætlaðan sem í þessu felst. Ég hef hins vegar ekki fjárveitingavaldið. Ég mun leggja þessa niðurstöðu fyrir ríkisstj. og e. t. v. er unnt að fá aukafjárveitingu í þessu skyni, en því get ég ekki svarað nú. Ég tel að það fari nokkuð eftir því hvernig tekst að lappa upp á stöðu ríkissjóðs ef ég má orða það svo. En ég teldi þetta málefni hins vegar það mikils virði að miðað við eðlilegar aðstæður er ég tilbúinn að mæla með því að aukafjárveiting verði veitt.