28.03.1984
Efri deild: 70. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4233 í B-deild Alþingistíðinda. (3606)
18. mál, stéttarfélög og vinnudeilur
Frsm. minni hl. (Stefán Benediktsson):
Virðulegi forseti. Aðeins örstutt. Hv. 4. þm. Austurl. nefndi tvö atriði sem lúta að innri starfsemi verkalýðsfélaga. Ég get ekki á mér setið að minnast aðeins á þau vegna þess að ég get tekið undir annað þeirra, þ. e. að leynilegar atkvæðagreiðslur í verkalýðsfélögum ættu að sjálfsögðu að viðgangast. Annað er í raun og veru ekki mannsæmandi í dag. Hins vegar er ég algjörlega á móti því að sett verði einhver gengismörk í þátttöku í atkvæðagreiðslum innan verkalýðsfélaga frekar en gert er í alþingiskosningum. Alþingiskosningar eru ekki síður mikilvægt mál en kosningar innan verkalýðsfélaga um samningagerð. Því tel ég með öllu óverjandi að halda því fram að það þurfi að beita einhverjum sérstökum kvótareglum um þátttöku. Lýðræðisleg þátttaka fólks verður aldrei fram knúin öðruvísi en með heilbrigðum málflutningi og með því að vekja áhuga fólks á þeim málefnum sem um ræðir.