04.04.1984
Efri deild: 76. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4442 í B-deild Alþingistíðinda. (3774)
222. mál, Aflatryggingasjóður sjávarútvegsins
Karl Steinar Guðnason:
Virðulegi forseti. Nokkuð var rætt um þetta frv. við 1. umr. og er því sjálfsagt óþarfi að fara mörgum orðum um það nú. Í áliti minni hl. sjútvn. kemur fram að það var ekki aðeins þessi minni hl. sem lagðist gegn samþykkt þessa frv. heldur nær allir þeir er komu til viðræðna við nefndina. Nær öllum var það ljóst að þetta frv. fjallar um það að færa frá sjómönnum til útgerðar. Þetta er einn þáttur í því að draga fé úr vösum sjómanna til útgerðarinnar. Við hljótum að mótmæla því að svo skuli staðið að verki og það gera reyndar öll þau hagsmunasamtök sem málið varðar. Þau vara við því að frv. verði samþykkt, telja þetta vond lög, óréttlát, sem muni verða til þess að skapa ófrið á milli útgerðar og sjómanna.
Ég tel ástæðu til að þakka formanni nefndarinnar fyrir ágætt samstarf í nefndinni um afgreiðslu mála. Þar er reynt að halda á málum á þann veg að menn fái að koma með sín sjónarmið. Ég er hins vegar undrandi á því írafári sem nú á sér stað þegar menn telja nauðsynlegt að renna þessu sem fyrst í gegn. Þetta hefur legið fyrir nefndinni mjög lengi og þar hefur aldrei vottað fyrir því að við fulltrúar minni hl. reyndum að tefja frv. Við höfum óskað upplýsinga og við höfum fengið þær. Þessar upplýsingar hafa stutt okkar sjónarmið, en hafa ekki orðið til að breyta skoðunum meiri hl. sem ég er þó sannfærður um að gerir þetta með hálfum huga. Þessum meiri hl. er vafalaust ljóst að þetta er þáttur í kjararáni því sem ástundað hefur verið á hendur sjómannastéttinni á undanförnum árum.
Ég tel ástæðulaust að fjölyrða um frv. nú. Ég mælist til þess að hv. deildarþm. samþykki þá brtt. sem minni hl. leggur fram og ég vonast til að meiri hl. sjútvn. hafi kjark til þess að greiða henni atkv. og ef sú till. nær ekki fram að ganga að fella frv., því ég veit að samviska þeirra liggur þeim megin.