04.04.1984
Efri deild: 76. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4447 í B-deild Alþingistíðinda. (3779)

134. mál, alþjóðasamningar um varnir gegn mengun frá skipum

Frsm. (Egill Jónsson):

Virðulegi forseti. Samgn. Ed. hefur fjallað um þetta mál á fundum sínum og hefur orðið sammála um að mæla með samþykkt þess eins og það var afgreitt frá Nd. Alþingis.