06.04.1984
Neðri deild: 71. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4534 í B-deild Alþingistíðinda. (3873)

222. mál, Aflatryggingasjóður sjávarútvegsins

Forseti (Birgir Ísl. Gunnarsson):

Eftir að hafa hlýtt á umr. sem hér hafa farið fram um þingsköp og hlýtt á óskir þm. um frestun á umr. þessa máls er forseti þeirrar skoðunar að það horfi til betra samkomulags í deildinni um endanlega afgreiðslu þessa máls ef þessari umr. yrði frestað fram á mánudag. Það geri ég í trausti þess að það verði ekki til að tefja fyrir framgangi þessa máls, því verði komið til nefndar á mánudag, og bið ég þm. að vera við því búna. Þessari umr. er þá frestað.