12.04.1984
Sameinað þing: 81. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4698 í B-deild Alþingistíðinda. (4098)
307. mál, staða íþrótta í landinu
Menntmrh. (Ragnhildur Helgadóttir):
Herra forseti.
Ég kveð mér hljóðs til þess í fyrsta lagi að lýsa stuðningi við þessa till. Ég held að það sé mjög þarft að láta fara fram heildarúttekt á hinum fjölbreyttu möguleikum sem nýttir eru í þágu íþrótta í landinu. Til þessa starfs eru lagðir mjög miklir fjármunir og það skiptir auðvitað miklu að þeir nýtist sem allra best, bæði hinum fjölmennu hópum æskufólks sem íþróttirnar stunda og svo landsmönnum almennt.
Þó að íþróttamálin heyri undir menntmrn. vil ég gjarnan beina því til þeirrar n. sem fær þetta mál til umfjöllunar hvort e. t. v. væri rétt að heilbrrn. tilnefndi líka einn fulltrúa a. m. k. í þessa nefnd þar eð hér er um að ræða mál sem mjög snertir heilsufar manna. Þess verður stundum vart að talin er ástæða til að fá enn betri tengsl einmitt við heilbrigðisþátt þessara mála. Það er ekki síst ástæða til þess þar sem áhugi á almennum íþróttum fer mjög vaxandi. Þátttaka almennings í íþróttum vex. Einmitt þetta atriði og þegar kemur til æfinga sem miðast við keppnisíþróttir gerir það að verkum að ástæða er til þess að hugsa sérstaklega um hinn heilsufarslega þátt í þessu sambandi. Ég veit að á þessu er skilningur víða en það sem einmitt vantar er það sem þessi till. fjallar um, að gerð sé á þessum málum heildarskoðun.
Það hafa verið mikil umbrot — ef ég má svo segja, umbrot í jákvæðri merkingu — á sviði þessara málefna nú á undanförnum árum og fer áhuginn tvímælalaust vaxandi. Það er auðvitað þarna sem víðar að kapp er best með forsjá og stundum vantar vissar leiðbeiningar. Það er líka ýmislegt sem unnt er að gera af hálfu sveitarfélaga til þess að hvetja til þátttöku í almenningsíþróttum, veita aðstöðu með leiðbeiningum og hvatningu án þess að í því felist svo geysimikil fjárútlát. Líka gæti það skipt máli í sambandi við þátttöku heilla fjölskyldna í ýmiss konar almenningsíþróttum. Það atriði þyrfti sérstaklega að athuga.
Þá vil ég nefna eitt atriði enn sem æskilegt væri að taka til sérstakrar umfjöllunar. Það er á hvern veg væri unnt að hvetja til aukinnar þátttöku skólanemenda í hinu svokallaða frjálsa íþróttastarfi, í íþróttafélögum, þannig að ekki verði einungis um að ræða hinar skyldugu skólaíþróttir sem vissulega eru að sumra mati e. t. v. ekki nægilega miklar og annarra mati í það mesta. Það sem máli skiptir er að virkja áhuga og getu hinna ungu nemenda í heilbrigt starf af þessu tagi. Það fer vissulega fram mikilvægt starf í þessu skyni á vegum menntmrn. og m. a. í störfum hv. flm. þessarar till. og á vegum íþróttafulltrúa og fleiri starfsmanna. Ég hygg að það verði störfum allra þessara aðila til framdráttar að fá slíka úttekt gerða sem þessi till. fjallar um. Vissulega er unnt að gera úttekt án þál. en ég hygg að hér sé um svo stóran málaflokk að ræða og svo stóran þátt í útgjöldum ríkisins eða hér sé æskilegt að fá umfjöllun Alþingis áður en að slíkri heildarúttekt verði horfið. Ég vil aðeins mæla með till., herra forseti.