12.04.1984
Sameinað þing: 81. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4740 í B-deild Alþingistíðinda. (4123)

291. mál, varnir vegna Skeiðarárhlaupa

Guðmundur Einarsson:

Herra forseti. Aðeins örstutt. Ég ætla að taka undir það sem kemur fram í þessari till. Ég held að þarna sé hreyft mjög mikilsverðu máli. Mikil verðmæti eru í húfi, bæði byggingar og land sem þarna hefur gróið upp á seinni árum. Ég tel nauðsynlegt fyrir margra hluta sakir að vernda bæði mannvirki og land. Af öryggisástæðum tel ég líka nauðsynlegt að tekið sé svo á sem lagt er til í þessu máli.