13.04.1984
Efri deild: 82. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4748 í B-deild Alþingistíðinda. (4145)

273. mál, ónæmisaðgerðir

Frsm. (Davíð Aðalsteinsson):

Virðulegi forseti. Heilbr.- og trn. Ed. hefur fjallað um þetta frv. og eins og nál. ber með sér leggur n. einróma til að frv. verði samþykkt.

Þetta frv. er afskaplega einfalt í sniðum. Það fjallar fyrst og fremst um innflutning og notkun á lifandi smitefnum. Það var ekki talin ástæða til að setja um þetta sérstök lög, heldur fella ákvæði um þetta efni inn í lög um ónæmisaðgerðir.