24.04.1984
Sameinað þing: 82. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4797 í B-deild Alþingistíðinda. (4214)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Borist hefur svohljóðandi bréf:

„Reykjavík, 18. apríl 1984.

Ólafur Jóhannesson, 9. þm. Reykv., hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég vegna veikinda mun ekki geta sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska ess, að 1. varamaður Framsfl. í Reykjavík, Haraldur Ólafsson dósent, taki sæti á Alþingi í forföllum mínum.“

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.

Salome Þorkelsdóttir,

forseti Ed.

Haraldur Ólafsson hefur áður setið á þessu þingi. Býð ég hann nú velkominn til starfa á ný.