25.04.1984
Efri deild: 84. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4855 í B-deild Alþingistíðinda. (4268)

213. mál, sala jarðarinnar Þjóðólfshaga

Frsm. (Eyjólfur Konráð Jónsson):

Virðulegi forseti. Ég get í sjálfu sér vísað til umr. sem nú er nýlokið um 8. dagskrármálið. Það á í rauninni allt hið sama við um þetta mál eins og það. Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt með sambærilegri breytingu eins og við hitt málið var samþykkt hér áðan, þ. e. að vísað er til 3.–5. mgr. 29. gr. jarðalaga.